Hæ hæ
þessi helgi var sko mega skemmtó.
Skelltum okkur til Horsens á Klakamót Íslendinga í Dk. Þar sem Bjarni var svo rosalega klár og duglegur að spila fótbolta með Sönderborgliðinu. Gistum hjá Ástu systir í nýja húsinu hennar og vorum þar 3 ég, Bjarni og Sigga. Og það var rosa stuð hjá okkur hehehe...
Svo fór Bjarni að keppa á lau og við píurnar skelltum okkur í bæinn með gelgjunni henni Dagbjörtu. Og þá fékk Sigga loksins vinkonu sem var alveg helvíti hress heheh
Svo þegar við komum heim þa var Bjarni búin á því. spilaði í 10 mínutur þegar hann gat ekki meira fyrir verkjum í bakinu, labbandi um eins og 70 kall hehe en náði nú samt að skora 1 mark á þessum 10 min... Enda minn maður



Svo var sótt mömmu og pabba út á völl, og þa fekk maður íslenskt kókópuffs og serjós og PIPAROST ummmmmm Og eg fekk 2 skopör fra stebbu systir, TAKK STEBBA! En ohh hvað það var gott að sja mömmu og pabba.
Þegar heim var komið var svo dottið í það og farið á ball, hitti alveg rosa mikið af fólki og þetta var bara gaman.
Í dag var svo skellt ser til 'Arósa til að fá ser Pizza Hut


Fórum svo aftur til<Ástu til að kveðja mor og far og þau. og vorum úti að spjalla og sátum í garðinum. Alltí einu heyrist brak og brestir og er ekki pabbi kylliflatur á gólfinu hehehe þá brotnaði stóllinn og hann lá þarna á bakinu í einum inniskó þetta var svo ógeðslega fyndið, en engin þorði að hlægja nema ég og Ásta, við erum svo mean hehehehe
En jæja er að fara að læra, er með MIKLA heimavinnu...
Góða nótt elskurnar

kiss kiss
Jóka